Fræðsla og fréttir

Tímabundin ókeypis tannlæknaþjónusta fyrir börn

3.5.2011

Frá 1. maí til og með 26. ágúst verður boðið upp á ókeypis nauðsynlegar tannlækningar fyrir börn tekjulágra foreldra/ forráðamanna sem eru yngir en 18 ára. Þjónustan er veitt af tannlæknum á tannlæknadeild Háskóla íslands sem meta hvað teljast nauðsynlegar tannlækningar.

Tekjur foreldra/ forráðamanna miðast við tekjur umsækjanda á árinu 2010 og miðast við:

  • Einstæðir foreldrar/forráðamenn með tekjur undir 2.900.000 kr.
  • Hjón eða sambúðarfólk með tekjur undir 4.600.000 kr.
  • Tekjuviðmiðið hækkar um 350.000 kr. fyrir hvert barn umfram eitt.
  • Heimilt er að víkja frá tekjuviðmiði ársins 2010 ef um verulega lækkun tekna á árinu 2011 er að ræða svo sem vegna atvinnuleysis.
  • Í undantekningartilvikum er heimilt að víkja frá tekjuviðmiðum ef um alvarlegan félagslegan vanda er að ræða.

Sækja þarf um þjónustuna á eyðublaðið á vef Tryggingastofnunar. Skila má umsóknum til Tryggingastofnunar, Laugavegi 114, Reykjavík og til umboða Tryggingastofnunar um land allt. Einnig má senda skönnuð afrit af undirrituðum umsóknum á netfangið tannverndbarna@tr.is.

Frekari upplýsingar má finna á vef Tryggingastofnunar

 

 




Leita á vefnum




Þetta vefsvæði byggir á Eplica