Fræðsla og fréttir

Aukin ráðgjafarþjónusta

30.11.2011

Frá og með 1. desember geta einstaklingar pantað tíma hjá ráðgjöfum umboðsmanns skuldara. Ráðgjöf fyrir þá sem eiga pantaðan tíma mun fara fram alla virka daga frá 9.00 til 12.00 og er hægt að panta tíma í síma 512-6600.

Áfram verður hægt að leita til umboðsmanns skuldara, án þess að eiga pantaðan tíma í ráðgjöf, alla virka daga frá 12.00 til 15.00. Þá er símatími embættisins óbreyttur, alla virka daga frá 13.00 til 15.00.

Með þessari breytingu er stefnt að því að veita betri þjónustu þegar viðskiptavinir koma til umboðsmanns skuldara í fyrsta sinn og leita ráðgjafar.




Leita á vefnum




Þetta vefsvæði byggir á Eplica