Tveggja fasteigna úrræði fellur úr gildi
Tímabundið úrræði fyrir þá sem eiga tvær fasteignir til heimilisnota rennur út nú um áramót, skv. lögum nr. 103/2010 og er síðasti umsóknardagur 30. desember 2011. Umsókn um úrræðið má finna hér.
Úrræðið er ætlað þeim sem keypt höfðu íbúð til heimilisnota á tímabilinu 1. janúar 2006 til 1. nóvember 2008 og hafa ekki náð að selja þá íbúð eða þá íbúð sem viðkomandi átti fyrir. Um er að ræða söluúrræði sem gerir fólki kleift að losa sig við aðra íbúðina með því að ráðstafa henni til kröfuhafa miðað við áætlað markaðsverð. Frekari upplýsingar um úrræðið má finna hér.
Alls hafa 117 sótt um þetta úrræði hjá umboðsmanni skuldara frá 1. ágúst 2010.
