Fræðsla og fréttir
Að fylgjast með útgjöldum
Settir þú þér það áramótaheit að halda betur utan um fjármálin? Gott fyrsta skref er að halda heimilisbókhald til að fylgjast betur með og áætla mánaðarleg útgjöld. Hægt er að styðjast við heimilisbókhald sem bankarnir bjóða upp á í netbönkum. Einnig er hægt að styðjast við heimilisbókhald umboðsmanns skuldara.
Hér getur þú sótt excel-skjal til að setja upp þitt eigið heimilisbókhald. Annars vegar er um að ræða einfalt heimilisbókhald og hins vegar aðeins flóknara heimilisbókhald sem býður upp á að setja inn eigin markmið í fjármálum.
