Fræðsla og fréttir
Ráðgjafar á Akureyri ráðnir
Tveir ráðgjafar hafa verið ráðnir sem munu starfa í fyrirhuguðu útibúi umboðsmanns skuldara á Akureyri. Ráðgjafarnir eru Heiðrún Ósk Ólafsdóttir lögfræðingur og Harpa Halldórsdóttir viðskiptafræðingur. Ráðgjafarnir eru nú í starfsþjálfun á aðalskrifstofu umboðsmanns skuldara í Reykjavík og munu verða þar um sinn.
Öllum umsækjendum er þakkaður sýndur áhugi.
Útibú umboðsmanns skuldara á Akureyri verður staðsett að Glerárgötu 26 á 1. hæð og er stefnt að því að útibúið muni opna í febrúar næstkomandi.
