Afskipti lögreglu af vörslusviptingum á bifreiðum
Lögreglu á höfuðborgarsvæðinu, á Selfossi, á Vestfjörðum hafa borist tilkynningar vegna meintrar ólöglegrar vörslusviptingar fjármálafyrirtækja á bifreiðum. Eitt slíkt mál hefur komið til kasta lögreglunnar á Seyðisfirði og lögreglunni í Borgarnesi og á Suðurnesjum hafa borist fyrirspurnir um heimildir til vörslusviptingar án þess að um formlegar tilkynningar eða kærur væri að ræða. Þetta kemur fram í svari innanríkisráðherra við fyrirspurn Eyglóar Harðardóttur, alþingismanns Framsóknarflokksins, um vörslusviptingar fjármálafyrirtækja á bifreiðum.
Mál er varða vörslusviptingu er til rannsóknar hjá lögreglunni á Ísafirði og á Selfossi.
Í leiðbeinandi reglum lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu um meðferð erinda vegna vörslusviptinga er kveðið á um að kærum til lögreglu vegna vörslusviptingar fyrir þjófnað, nytjastuld, gertæki eða eitthvert annað brot verði að vísa frá, þar sem um sé að ræða einkaréttarlegan samning sem leysa beri úr í einkamáli.
Þá hefur ríkislögreglustjóri til skoðunar setningu verklagsreglna innan lögreglunnar vegna vörslusviptinga í ljósi niðurstöðu innanríkisráðuneytisins sem síðasta sumar varaði við lögbrotum vegna vörslusviptinga. Þar var bent á að í lögum um aðför væri kveðið á um að ef einhver teldi sig eiga eign í vörslum annarra sem hann vildi fá í sínar hendur og ágreiningur væri með aðilum þyrfti að afla dómsúrskurðar um að taka mætti eignina úr vörslum umráðamanns.
