Greinargerð um niðurfærslu lána
Hagfræðistofnun Háskóla Íslands hefur sent frá sér greinargerð um afföll íbúðalána við stofnun nýju bankanna og kostnað við niðurfærslu lána. Ríkisstjórn Íslands fól Hagfræðistofnun í október 2011 að kostnaðarmeta tillögur Hagsmunasamtaka heimilanna á fjórum leiðum til að leiðrétta lán heimilanna ásamt því að fara yfir fyrirliggjandi gögn um afföll húsnæðislána heimilanna þegar þau voru færð frá gömlu bönkunum yfir til nýju bankanna. Helstu niðurstöður Hagfræðistofnunar er að líklegast muni kostnaður af almennum skuldaniðurfellingum lenda að langmestu leyti á ríkinu.
Hagsmunasamtök heimilanna hafa gagnrýnt skýrslu Hagfræðistofnunar, en finna má gagnrýni þeirra hér.
