Hvað er tímabundin greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna?
Með tímabundinni greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna á íbúðarhúsnæði er leitast við að gera skuldurum kleift að endurskipuleggja fjármál sín með því að lækka greiðslubyrði af lánum sem hvíla á fasteign skuldarans. Um greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna gilda lög nr. 50/2009 sbr. lög nr. 102/2010.
Tímabil greiðsluaðlögunar er að hámarki 5 ár. Greiðslugeta umsækjenda er metin og greitt í samræmi við hana. Miðað er við að mánaðargreiðslur séu sem nemur 60-100% af hæfilegri húsaleigu á almennum markaði.
Þegar eingöngu er sótt um tímabundna greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna skal skila umsókn beint til héraðsdóms í því umdæmi sem umsækjandi hefur lögheimili.
Starfsfólk umboðsmanns skuldara veitir aðstoð við gerð umsóknar sé þess óskað og hægt er að nálgast umsóknareyðublöð undir liðnum umsókn um greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna í valmynd hér til hliðar. Með umsókn þarf að fylgja fjárhagsyfirlit, sem finna má á sama stað.
