Greiðsluaðlögun einstaklinga
Markmið með greiðsluaðlögun er að gera einstaklingum í verulegum greiðsluerfiðleikum kleift að endurskipuleggja fjármál sín og koma jafnvægi á milli skulda og greiðslugetu þannig að raunhæft sé að skuldari geti staðið við skuldbindingar sínar um fyrirsjáanlega framtíð.
Sótt er um greiðsluaðlögun hjá umboðsmanni skuldara. Athugið að embættir veitir ókeypis aðstoð við að fylla út umsókn eða skrifa meðfylgjandi greinargerð, sé þess óskað.
Ef umsækjandi uppfyllir skilyrði laga nr. 101/2010 til að fá heimild til greiðsluaðlögunar er skipaður umsjónarmaður sem vinnur að gerð samnings um greiðsluaðlögun. Samningurinn getur kveðið á um að greitt sé af skuldum í samræmi við greiðslugetu. Lengd greiðsluaðlögunartímabils skal að jafnaði vera 1 til 3 ár.
Með greiðsluaðlögun má kveða á um:
- algera eftirgjöf einstakra krafna
- hlutfallslega lækkun einstakra krafna
- gjaldfrest á einstökum kröfum
- skilmálabreytingar
- greiðslu einstakra krafna með hlutdeild í afborgunarfjárhæð sem greiðist með ákveðnu millibili á ákveðnu tímabili
- breytt form greiðslu krafna
- allt framangreint í senn
Þegar umsókn um greiðsluaðlögun hefur verið samþykkt af umboðsmanni skuldara hefst frestun greiðslna. Með frestuninni eru lagðar ákveðnar skyldur á herðar kröfuhöfum og umsækjendum.
Á fresttíma má umsækjandi einungis greiða það sem viðkemur rekstri heimilsins og framfærslu. Framfærslan innifelur mat, hreinlætisvörur, tómstundir, fatnað, lækniskostnað skv. neysluviðmiði umboðsmanns og fastra liða í framfærslu s.s. síma, hita, rafmagn, dagvistun og fleira. Umsækjandi þarf einnig að leggja til hliðar allar afgangstekjur sínar. Á fresttíma er kröfuhöfum óheimilt að taka við greiðslum vegna skulda hvort sem umsækjandi er í skilum eða vanskilum. Þetta á við um greiðslur af veðlánum og öðrum lánum s.s. bílakaupalánum, yfirdráttarlánum og fleira. Þá er kröfuhöfum einnig óheimilt að krefjast nauðungarsölu á eigum umsækjenda og hjá þeim sem kynnu að vera í ábyrðum fyrir umsækjenda.
Fyrir þá sem sóttu um fyrir 1. júlí 2011 lýkur frestun greiðslna með samning, afturköllun umsóknar eða synjun umsóknar. Fyrir þá sem sóttu um síðar lýkur frestun greiðslna með samningi við kröfuhafa.
Athugið að frestun greiðslna er lögum skv. auglýst í lögbirtingablaði.
