Afgreiðsla umsóknarinnar
Umsóknin þín er yfirfarin af starfsfólki sem gengur úr skugga um að öll gögn séu til staðar og kallar eftir gögnum frá fjármálafyrirtækjum. Ef eitthvað vantar uppá verður haft samband við þig og kallað eftir frekari gögnum eða skýringum. Umboðsmaður skuldara tekur síðan ákvörðun, innan tveggja vikna frá því að fullbúin umsókn liggur fyrir um hvort hann samþykkir umsókn þína eða hafnar henni.
Athugið að umboðsmaður skuldara hefur, skv. lögum um greiðsluaðlögun einstaklinga, skyldu til að ganga úr skugga um að í umsókn skuldara komi fram allar nauðsynlegar upplýsingar og getur hann ef þörf krefur krafist þess að skuldari staðfesti upplýsingarnar með skriflegum gögnum. Umboðsmaður skuldara skal auk þess afla frekari upplýsinga sem hann telur geta skipt máli varðandi skuldir, eignir, tekjur og framferði skuldara, áður en hann tekur ákvörðun um hvort veita skuli heimild til að leita greiðsluaðlögunar. Umsókn telst ekki fullbúin fyrr en þessari vinnu er lokið.
Ef umboðsmaður skuldara synjar umsókninni getur þú kært þá ákvörðun til kærunefndar greiðsluaðlögunarmála innan tveggja vikna frá því að umboðsmaður tilkynnir þér um ákvörðun sína.
Ef umsóknin er samþykkt verður þér skipaður umsjónarmaður og er þjónusta hans þér að kostnaðarlausu. Umsjónarmaðurinn auglýsir eftir kröfum á þig í Lögbirtingablaði og tekur það ferli fjórar vikur eftir fyrstu auglýsingu. Síðan gerir hann drög að samningi, í samráði við þig, við kröfuhafa þína og sendir þeim. Kröfuhafarnir hafa þrjár vikur til að yfirfara samninginn og annað hvort samþykkja hann eða hafna. Ef samingurinn er samþykktur sér umboðsmaður skuldara um að semja við banka um að taka að sér greiðslumiðlun og málsmeðferð vegna breytinga og riftana. Umboðsmaður skuldara sér einnig um þinglýsingar og fleira. Umboðsmaður skuldara heldur síðan skrá um alla þá sem hafa fengið greiðsluaðlögun samþykkta.
Ef samningurinn er ekki samþykktur af kröfuhöfum getur þú óskað eftir við umsjónarmann þinn að leita nauðasamnings til greiðsluaðlögunar skv. lögum um gjaldþrotaskipti o.fl.. Umsjónarmaður skoðar þá samninginn með athugasemdir kröfuhafa á synjuninni í huga og leggur mat á hvort grundvöllur sé fyrir nauðasamningi. Ef hann mælir með að nauðasamningur til greiðsluaðlögunar komist á útbýr hann beiðni um nauðasamning sem er síðar lögð fyrir dómara til ákvörðunar.
Ef umsjónarmaðurinn telur ekki grundvöll fyrir nauðasamningi til greiðsluaðlögunar getur þú lagt fram kæru um þá niðurstöðu til kærunefndar greiðsluaðlögunarmála, skila þarf kæru innan tveggja vikna frá því að ákvörðun umsjónarmannsins liggur fyrir.
