Hvað stendur utan greiðsluaðlögunar?
Hvað stendur utan greiðsluaðlögunar?
Þú getur farið með allar skuldir í greiðsluaðlögun nema:
- Skuldir sem stofnað hefur verið til eftir að sótt var um greiðsluaðlögun
- Skuldir sem ekki áttu að greiðast með peningum heldur með t.d. vinnuframlagi
- Ýmsar forgangskröfur sem tilgreindar eru í lögum um gjaldþrotaskipti. Þetta eru kröfur svo sem skuldir sem eru tilkomnar vegna sölu eða ráðstöfunnar eigna sem viðkomandi átti ekki, útfararkostnaður og gjöld tengd atvinnurekstri, s.s. lífeyrissjóðsgjöld og fleira
- Sektir og skaðabætur sem búið er að dæma þig til að greiða eða leggja á þig af stjórnvaldi falla ekki undir greiðsuaðlögun
- Ógreiddur virðisaukaskattur og ógreidd staðgreiðsla af launum fellur ekki undir greiðsluaðlögun
- Óverulegar fjárhæðir skulda
- Námslán, en afborgunum og vöxtum af námslánum má fresta á greiðsluaðlögunartímanum
- Meðlagsskuldir
Gera þarf ráð fyrir þessum skuldum við samning.
