Hvaða gögn þurfa að fylgja?
Hvaða gögn þurfa að fylgja umsókninni?
- Umsókn um greiðsluaðlögun telst ekki gild nema því aðeins að umsækjandi hafi skilað inn skattframtölum síðustu fjögurra ára til skattstjóra.
- Upplýsingar um aðrar tekjur en launatekjur. Þú þarft að skila inn yfirliti um bótagreiðslur, meðlagsgreiðslur og lífeyrisgreiðslur allra heimilismanna síðustu þriggja mánaða. Jafnframt þurfa að fylgja upplýsingar um aðra fjármuni en vinnutekjur til að greiða af skuldum, svo sem vegna sölu eigna eða fjárframlaga annarra.
- Þeir sem eru sjálfstætt starfandi þurfa að skila inn launaseðlum síðustu þriggja mánaða.
- Greinargerð um stöðuna. Í greinargerð skal taka fram hvaða lán hafa verið tekin og í hvaða tilgangi, hvort breytingar hafi orðið á tekjum eða atvinnuhögum eða hvort líklegt sé að slíkar breytingar verði í náinni framtíð. Jafnframt skal taka fram upplýsingar um aðra fjármuni en vinnutekjur til að greiða af skuldum svo sem vegna sölu eigna eða fjárframlaga annarra. Ítarlegar leiðbeiningar um skrif greinargerðar má finna í valmynd hér til hliðar. Ef óskað er aðstoðar við skrif greinargerðar er hægt að bóka tíma hjá umboðsmanni skuldara í síma 512 6600.
- Samþykki fyrir gagnaöflun undirritað af þér og ef við á af maka þínum og þeim sem teljast til heimilisins. Þú finnur eyðublað um samþykki fyrir gagnaöflun undir liðnum umsókn um greiðsluaðlögun.
- Athugið: Ekki er hægt að hefja vinnslu umsóknar fyrr en öll gögn hafa borist. Umboðsmaður er bundinn trúnaði um allar upplýsingar sem aflað verður.
