Hver getur leitað greiðsluaðlögunar?
Hverjir geta sótt um?
Einstaklingar, hjón og sambúðaraðilar geta sótt um greiðsluaðlögun. Hjón og sambúðaraðilar geta sótt um saman.
Umsækjandi þarf að vera í verulegum greiðsluerfiðleikum eða sjá fram á að geta ekki staðið við skuldbindingar sínar um fyrirsjáanlega framtíð.
Greiðsluerfiðleikar teljast vera þegar umsækjandi á í verulegum erfiðleikum með að standa við fjárskuldbindingar sínar um fyrirséða framtíð með tilliti til eðlis skuldanna, eigna og fjárhagslegra og félagslegra aðstæðna hans að öðru leyti.
Umsækjandi þarf að eiga lögheimili á Íslandi
Til að geta sótt um greiðsluaðlögun þarf umsækjandi að eiga lögheimili og búa á Íslandi. Undantekningar frá þessu skilyrði eru fyrir þá íslensku ríkisborgara sem tímabundið eru búsettir erlendis vegna náms, starfa eða veikinda og skulda aðilum hér á landi. Sama gildir um veðkröfur sem hvíla á fasteign hér á landi í eigu íslensks ríkisborgara, sem er tímabundið búsettur erlendis vegna náms, starfa eða veikinda.
