Hjálparstofnanir og gjaldfrjáls þjónusta

Hjálparstofnanir og önnur gjaldfrjáls þjónusta

Rauðakrosshúsið við Borgartún 25 er miðstöð fyrir fólk sem orðið hefur fyrir áföllum vegna efnahagsþrenginganna. Starfið er byggt á áralangri reynslu félagsins af viðbrögðum í neyð. Þar geta einstaklingar og fjölskyldur sótt sér sálrænan stuðning og ráðgjöf um þau úrræði sem bjóðast í samfélaginu. Einnig er í boði ýmis konar fræðsla og félagsstarf sem er opið öllum.  Skiptifatamarkaður með barnaföt er alla þriðjudaga frá kl. 16:00-18:00.  Að öðru leyti er húsið opið alla virka daga á milli kl. 13:00 og 16:00.

Heimsóknavinir RKÍ.  Öll höfum við þörf fyrir félagsskap, nærveru og hlýju. Maður er manns gaman. En það er misjafnt hvort og hvernig við berum okkur eftir hjálpinni. Bæði aðstæður og upplag geta orðið til þess að fólk missir samband við umheiminn og einangrast. Einsemd getur orðið vítahringur sem erfitt er að rjúfa. Síminn hjá Rauða krossinum er 570-4000.

Fataúthlutun RKÍ á höfuðborgarsvæðinu fer fram að Laugavegi 116 í Reykjavík á miðvikudögum milli kl. 10:00 og 14:00. Gengið inn af bílastæði Grettisgötumegin.

Mæðrastyrksnefnd (er á Facebook)  Úthlutun á mat á miðvikudögum kl. 14:00-17:00.  Fataúthlutanir eru fyrsta þriðjudag hvers mánaðar frá kl. 13:00-15:00.  Mæðrastyrksnefnd er til húsa í Hátúni 12 og gengið er inn um austurenda hússins. Nauðsynlegt er að taka með sér skilríki.

Fjölskylduhjálp Íslands  er staðsett við Eskihlíð 2-4.  Úthlutun á mat fer fram alla miðvikudaga frá kl. 14:00-16:00.  Um leið er hægt að versla mjög ódýran fatnað.

Hjálparstarf kirkjunnar  er staðsett í safnaðarheimili Grensáskirkju.  Fataúthlutanir fara fram á þriðjudögum, en félagsráðgjafi þarf að panta tíma fyrir viðkomandi.  Félagsráðgjafar starfa á þjónustumiðstöðvum í 6 hverfum Reykjavíkur og um land allt.  Einnig eru félagsráðgjafar starfandi hjá umboðsmanni skuldara.

Félagsráðgjafar geta einnig útvegað 35% afslátt í Góða hirðinum í gegnum Rauða krossinn.  Einungis er hægt að nýta þennan afslátt í eitt skipti svo hugsunin er að mikið sé keypt í einu.

Hjálpræðisherinn rekur Hertex fatabúð við Garðastræti 6 þar sem hægt er að versla ódýran fatnað.  Búðin er opin alla virka daga frá kl. 13:00-18:00 og á laugardögum frá kl. 10:00-14:00.  Einnig rekur Hjálpræðisherinn Hertex nytjamarkað við Eyjarslóð 7 (við hlið Seglagerðarinnar Ægis).  Hann er opinn alla virka daga frá kl. 13:00-18:00 og á laugardögum frá kl. 10:00-14:00.

Ýmsar vefsíður eru til þar sem hægt er að nálgast ókeypis hluti.  Nauðsynlegt er að fylgjast reglulega með.  Eftirfarandi síður eru mikið nýttar:

www.barnaland.is

www.fritt.is




Þetta vefsvæði byggir á Eplica