Ráðgjöf
Eitt af hlutverkum umboðsmanns skuldara er að veita einstaklingum sem eiga í verulegum greiðsluerfiðleikum endurgjaldslausa ráðgjöf. Ráðgjöfin felst m.a. í gerð greiðsluerfiðleikamats til að öðlast heildarsýn á fjármálin og leita leiða til lausnar. Við vinnslu greiðsluerfiðleikamats er m.a. aflað upplýsinga frá kröfuhöfum um eftirstöðvar lána og um vanskil ef svo ber undir. Einnig ef umsækjandi er ábyrgðarmaður og ýmislegt annað sem tengist fjárhagsstöðu viðkomandi umsækjanda. Samþykki fyrir gagnaöfluninni þarf að undirrita og skila inn með umsókn. Umsækjendur verða sjálfir að skila upplýsingum um sérstaka framfærsluliði skv. reikningum svo sem kostnað vegna hita, rafmagns og trygginga. Einnig upplýsingum um launagreiðslur, eignir og allt sem máli skiptir til að fá sem besta mynd af núverandi fjárhagsstöðu.
Þegar greiðslugeta liggur fyrir er leitað lausna til að aðlaga greiðslubyrði að greiðslugetu. Lausnirnar geta verið mismundi og sem dæmi geta þær falist í ráðgjöf, milligöngu í samningum við kröfuhafa, aðstoð við umsókn um greiðslufrestun lána eða greiðsluaðlögun svo fátt eitt sé nefnt.
