Hvaða gögn þurfa að fylgja umsókn?
Hvaða gögn þurfa að fylgja umsókn um ráðgjöf?
Ef umsækjendur eru hjón eða sambúðaraðilar þarf að skila neðantöldum gögnum fyrir báða aðila.
-
Útfyllt umsókn um ráðgjöf, sjá https://umsokn.ums.is/Umsokn/
-
Afrit gagna er gefa upplýsingar um lífeyri, bætur, meðlag og aðrar tekjur
-
Ef umsækjandi er sjálfstætt starfandi þarf afrit af launaseðlum síðustu þriggja mánaða
- Samþykki fyrir gagnaöflun sem hægt er að nálgast undir liðnum umsókn um ráðgjöf
-
Athugið að ekki er hægt að hefja vinnslu umsóknar um ráðgjöf nema umsækjandi hafi staðið skil á skattframtölum síðustu fjögurra ára til skattstjóra
