110% leið, staða lána frá áramótum
Spurning: Mig langar að vita hvort það er löglegt við 110 % regluna að meta eignina á markaðsvirði í dag en lánin eru tekið miðað við 31.12.2010 en það gera þeir sem verður til þess að ég fell ekki undir þessa leiðréttingu.
Svar: Samkomulag lánveitenda á íbúðalánamarkaði um niðurfærslu veðskulda að 110% af verðmæti byggir ekki á lögum heldur á viljayfirlýsingu viðkomandi aðila og ríkistjórnarinnar frá 3. desember 2010. Því væri ekki um eiginlegt lögbrot að ræða ef lánveitendur fylgja ekki verklagsreglum samkomulagsins.
Misræmið sem bent er á er í raun innbyggt í samkomulagið. Þannig stendur í 1. grein samkomulagsins sem fjallar um veðhlutfall, "Niðurfærsla skal eiga sér stað hjá þeim kröfuhafa/-höfum sem eru á veðréttum umfram 110% af verðmæti eignar. Miðað skal við uppreiknaða stöðu veðskulda þann 1. janúar 2011". Í grein 1.3 sem fjallar um verðmæti veðsettra eigna segir, "Við mat á verðmæti fasteigna skal miðað við fasteignamat eða markaðsverð þeirra, hvort sem er hærra". Dagsetning til viðmiðunar er ekki tilgreind. Þetta leiðir til þess að ef hækkun verður á markaðsverði fasteigna eftir því sem líður á árið, minnkar sú niðurfærsla sem heimili eiga rétt á.
