Tímabundin úrræði vegna tveggja fasteigna

Hvað er tímabundið úrræði vegna tveggja fasteigna?

Þetta úrræði er ætlað þeim sem keypt höfðu íbúð til heimilisnota á tímabilinu 1. janúar 2006 til 1. nóvember 2008 og hafa ekki náð að selja. Um er að ræða söluúrræði sem gerir fólki kleift að losa sig við aðra íbúðina með því að ráðstafa henni til kröfuhafa miðað við áætlað markaðsverð. Um tímabundið úrræði vegna tveggja fasteigna til hemilisnota gilda lög nr. 103/2010.

Hverjir geta sótt um?

Umsækjandi þarf að vera þinglýstur eigandi beggja eigna. Séu hjón eða sambúðaraðilar bæði þinglýstir eigendur eignanna verða þau að sækja um saman.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica