Um umboðsmann

Um umboðsmann skuldara

Embætti umboðsmanns skuldara er ríkisstofnun sem umboðsmaður skuldara veitir forstöðu. Stofnunin, sem heyrir undir velferðarráðherra, tók til starfa 1. ágúst 2010. Hún er byggð á grunni Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna. Meginmarkmiðið er að bæta stöðu einstaklinga sem eiga í skulda- og greiðsluerfiðleikum í kjölfar efnahagshrunsins haustið 2008 og auðvelda þeim að koma greiðslubyrði og skuldastöðu í ásættanlegt horf. Umboðsmaður skuldara skal hafa hagsmuni skuldara og réttindi þeirra að leiðarljósi. Umboðsmanni er einnig ætlað viðamikið hlutverk varðandi greiðsluaðlögun. Lög um umboðsmann skuldara eru nr. 100/2010.

Hlutverk umboðsmanns skuldara samkvæmt lögum er m.a. að gæta hagsmuna skuldara og veita þeim aðstoð þegar við á. Einnig á hann að veita einstaklingum sem eiga í verulegum greiðsluerfiðleikum endurgjaldslausa aðstoð við að öðlast heildarsýn á fjármál sín og leita leiða til lausnar. Í kjölfarið að hafa hafa milligöngu um samskipti og samninga við lánardrottna með hagsmuni skuldara að leiðarljósi. Markmiðið er að ná fram eins hagstæðri lausn og kostur er fyrir skuldara, án tillits til þess hvaða áhrif sú lausn hefur á hagsmuni einstakra kröfuhafa. Önnur hlutverk eru að veita aðstoð við gerð samninga um greiðsluaðlögun og að veita alhliða ráðgjöf og fræðslu um fjármál heimilanna. Að lokum skal nefna að hann á að útbúa framfærsluviðmið og uppfæra þau reglulega og taka við erindum og ábendingum skuldara um ágalla á lánastarfsemi og senda áfram til viðeigandi eftirlitsstjórnvalds. 

Stofnunin á einnig að vera velferðarráðherra til ráðuneytis um málefni skuldara og stefnumörkun á því sviði.

Umboðsmaður skuldara er Ásta Sigrún Helgadóttir, lögfræðingur.

Hjá umboðsmanni starfa um 80 starfsmenn.

Almennar upplýsingar:

Umboðsmaður skuldara  kt. 660710-1080

Kringlan 1 - 103 Reykjavík

Sími 512-6600 -  Grænt númer 800 6600 - Fax  551-4495

Netfang: ums@ums.is   Veffang: www.ums.is

Afgreiðslutími er frá 9:00 - 15:00 virka daga 

 

Umboðsmaður skuldara í Reykjanesbæ

Vatnsnesvegi 33 - 230 Reykjanesbæ

Sími 512-6600 -  Grænt númer 800 6600 - Fax  551-4495

Netfang: ums@ums.is   Veffang: www.ums.is

Afgreiðslutími er frá 8:30 - 15:00 virka daga

 

Umboðsmaður skuldara á Akureyri

Glerárgötu 1 - 600 Akureyri

Sími 512-6600 -  Grænt númer 800 6600 - Fax  551-4495

Netfang: ums@ums.is   Veffang: www.ums.is

Afgreiðslutími er frá 9:00 - 15:00 virka daga




Þetta vefsvæði byggir á Eplica