Fara í efni

Fréttir

templateShare
Bráðum koma blessuð jólin
Salbjörg Bjarnadóttir
Salbjörg Bjarnadóttir

Það er komið að því enn einu sinni að blessuð jólin með öllu sínu tilstandi nálgast með ógnarhraða. Fyrir mörgum eru jólin kærkomin hvíld frá hversdagsleikanum. Tilhlökkun um jólaljósin, skreytingar, að gleðjast með sínum nánustu, borða góðan mat, taka upp gjafir, fara í heimsóknir og hlýða á jólamessu. Sumir gleyma sér þó í kapphlaupinu við að gera jólin sem glæsilegust og stundum virðist uppruni þeirra hverfa í skarkala og græðgi. Auglýsingar dynja á fjölskyldum og erfitt getur verið að útskýra að ekki sé til fjármagn til að koma á móts við allar langanir barnanna hvað þá hinna fullorðnu.

Því miður vill  tilhlökkunin því stundum breytast í kvíða, því sumir eiga varla til hnífs og skeiðar hvað þá að þeir hafi efni á þeim glæsilegu dýru jólagjöfum sem auglýsingarnar segja að séu vinsælastar. Þá reynir á hugvit þeirra sem eldri eru að gera hið besta úr aðstæðum og vera meðvituð um að það er samkennd og góðar samverustundir sem lifa hvað lengst í huga okkar.

Mér er einnig hugsað til allra þeirra sem á þessum tíma berjast við erfiða sjúkdóma eða syrgja látinn ástvin og þora varla að láta sig hlakka til. Það þarf hugrekki til að takast á við sorg og ræða við sína nánustu um líðan sína og stundum þarf faglega ráðgjöf. Þeir sem hafa misst heilsuna,  ástvin eða jafnvel skilið við maka sinn  þurfa að undirbúa jólin í breyttri mynd og þá þarf að hlúa sérstaklega að börnum í þessum fjölskyldum. Sýna að hinir fullorðnu ráði við aðstæður, hafi  frumkvæði og jákvæðni til að bera og hlusta á hvernig börnin myndu helst vilja hafa jólin. Börn hafa ávallt væntingar og það er okkar fullorðna fólksins að reyna að komast til móts við þarfir þeirra og fá þau til að sjá það jákvæða.

Svo eru það þeir sem fást við einmanakennd, eiga erfiðar minningar þar sem heimilislífið um jólin einkenndust kannski af rifrildi, drykkjuskap, pirringi, vonleysi og sektarkennd. Fyrir þessum einstaklingum geta jólin og gleði þeirra verið mjög erfiður tími. Þeir sem af einhverjum ástæðum búa við erfiðar minningar og tómleika geta samt ákveðið að búa til nýja hefð. Með nýjum jákvæðum hugsunarhætti er hægt að ákveða að það megi vera gaman á jólunum. En það kostar tíma, ákveðni og áhuga að vinna í þessari breytingu alveg eins og öðrum breytingum. Það er undir einstaklingnum sjálfum komið að þora að hlúa að sjálfum sér og sínum nánustu og þá einkum að börnum sínum. Börn elska foreldra sína og þystir í að vita að foreldrar eru að reyna að gera sitt besta og þau sýni börnum sínum hlýju og umhyggju þrátt fyrir erfiðleikana. Stundum er of erfitt heima og þá er mikilvægt að börn hafi stuðning og elsku ömmu og afa og/eða annarra náinna ættingja.

 

Verum meðvituð um að innihald jólanna er kærleikur og samvera. Gjafir sem gefnar eru af heilum hug eru dýrmætari en stórar dýrar gjafir sem gefnar eru í samkeppi um vinsældir eða áhrif. Það er mikilvægt að vanda sig í samskiptum við sína nánustu allt árið, njóta þess að eiga þá sem við eigum að og muna  að allir eru sérstakir og hafa einhverja kosti sem við getum notið með þeim.

Verum meðvituð um okkur sjálf,  nánustu fjölskyldu, vini og vinnufélaga. Njótum samverunnar. Hrós, bros og hvatning kostar lítið, en þú færð það margfalt til baka.

Verum fyrirmynd fyrir börnin okkar og gefum þeim tíma, þau eiga það skilið.

Gleðileg jól

Salbjörg Bjarnadóttir