Fara í efni

Allt sem þú vildir vita um skatta og fjárlög - Svanhildur Hólm Valsdóttir

Svanhildur Hólm Valsdóttir starfar í dag sem framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. Hún starfaði í fjölda ára sem aðstoðarmaður fjármála- og forsætisráðherra. Einnig starfaði hún lengi í fjölmiðlum.
Hún ræðir hér um skatta, ríkisfjármál og af hverju við eigum að þekkja til þessara málaflokka og láta þá okkur varða. Auk þess ræðum við fjölmargt fleira:

  • Uppeldi hennar úti á landi og ólíka starfsreynslu.
  • Hvernig hún sjálf talar um peninga við sín börn?
  • Hvað gera aðstoðarmenn ráðherra?
  • Hvað eru fjárlög hvernig skiptast útgjöld ríkisins?
  • Ólíka skatta ríkisins og sveitarfélaga.
  • Af hverju maður eigi að skoða álagningarseðilinn sinn á hverju vori.
  • Hvernig venjulegt fólk fer að því að setja þessar háu tölur, oft marga milljarða í samhengi og skilja umfang þeirra.
  • Hvernig vaxtagjöld ríkisins hafa farið lækkandi og hvað það þýðir?
  • Hvað Covid 19 kreppan kostar ríkissjóð á hverjum degi?
  • Hvar er hægt að hagræða í rekstri ríkisins?
  • Hvað Svanhildur myndi gera ef hún væri alráð í fjármálaráðuneytinu í einn dag?
  • Hvort skattar séu of háir á Íslandi?

Svanhildur býr að mikilli reynslu og þekkingu á rekstri ríkisins og fer hér yfir skatta og útgjöld ríkisins í þessu áhugaverða viðtali.