Fara í efni

Eikonomics, hugleiðingar hagfræðings með athyglisbrest - Eiríkur Ragnarsson.

Eiríkur Ragnarsson er hagfræðingur sem hefur skrifað pistla undir heitinu Eikonomics. Hann var að gefa út bók með sama heiti og er til umfjöllunar í þessu viðtali.
Í þessu viðtali ræðum við fjölmargt áhugavert tengdu hagfræði, má þar nefna:

  • Fjárfestingar á tímum Covid, Gamestop og Robinhood
  • Af hverju maður á að fjárfesta í leiðinlegum hlutum
  • Hvaðan þetta nafn Eikonomics kom til?
  • Skattlagning á arfi og hver áhrifin voru þegar Dick Cheney nefndi skattinn dauðaskattinn
  • Af hverju sérfræðingar eru ekki góðir að miðla þekkingu sinni á mannamáli og tilraun bókarinnar til að nálgast það vandamál
  • Hvernig Freakonomics og Tim Harford voru Eiríki innblástur til að skýra flókna hluti
  • Muninn á Macro og Micro hagfræði
  • Hvernig hegðun hefur áhrif á mörkuðum og þá um atferlishagfræði
  • Hvernig höldum við hagvexti gangandi um leið og við komum í veg fyrir að jörðin tortímist

 

Þetta og margt fleira tengt hagfræði í þessu áhugaverða viðtali
Hægt er að nálgast bók Eiríks hér á vef forlagsins