Fara í efni

Raggi Bjarna var fyrsti fjármálaráðgjafinn

Páll Óskar Hjálmtýsson er einn ástsælasti listamaður þjóðarinnar. Hann hefur skemmt Íslendingum frá árinu 1991 og gengið í gegnum ýmislegt þegar fjármál eru annars vegar.

Í þessum þættir ræðum við:

  • Ráðleggingarnar frá Ragga Bjarna
  • Mikilvægi þess að fá ekki leið á slögurunum sínum
  • Breyttan heim listamanna í Covid
  • Tekjurnar af plötusölu og Spotify
  • Fjárhagsvandræðin upp úr aldamótum
  • Hvort peningar séu rót alls ills
  • Mikilvægi þess að finna sér starfsvettvang sem maður nýtur
  • Mikilvægi þess að vera dugleg/ur
  • Hvernig Páll Óskar verðleggur listina sína

Og margt fleira.

Leitin að peningunum er framleidd af Umboðsmanni skuldara með stuðningi frá félagsmálaráðuneytinu.