Fara í efni
Jan Feb Mar Apr Maí Jún Júl Ágú Sep Okt Nóv Des

Ný framfærsluviðmið umboðsmanns skuldara

Þegar neysluviðmið þáverandi velferðarráðuneytisins voru birt í fyrsta skipti árið 2011, lá til grundvallar skýrsla sérfræðingahóps um neysluviðmið fyrir heimili á Íslandi. Í skýrslunni voru kynnt þrjú ný íslensk neysluviðmið, þ.e. dæmigert viðmið, skammtímaviðmið og grunnviðmið. Viðmiðin byggjast í meginatriðum á svonefndri útgjaldaaðferð, þ.e. stuðst er við upplýsingar úr gagnagrunni Hagstofu Íslands, sem hefur framkvæmt rannsóknir á útgjöldum heimilanna. Þar sem eitt af hlutverkum umboðsmanns skuldara samkvæmt lögum nr. 100/2010, er að útbúa framfærsluviðmið og uppfæra það reglulega, var tekin sú ákvörðun af hálfu embættisins í apríl 2012, að byggja á skammtímaviðmiðum skýrslunnar, með ákveðnum undantekningum. Skammtímaviðmiðin byggjast á dæmigerðum viðmiðum, en dregið er úr ákveðnum útgjöldum, þar sem þau er hugsuð sem viðmið sem hægt er að nota í skamman tíma.
Gunnar Baldvinsson
Gunnar Baldvinsson

Viðbótarlífeyrissparnaður - Taktu strax skref til að stýra þínum eigin fjármálum

Það er spennandi að byrja í nýrri vinnu hvort sem það er tímabundin sumarvinna eða vinna með skóla. Það gaman að kynnast nýju fólki, læra ný störf og taka þátt í atvinnulífinu eins og fullorðna fólkið. Það er líka góð tilhugsun að fá laun og ráða sínum eigin fjármálum. Gunnar Baldvinsson framkvæmdarstjóri Almenna lífeyrissjóðsins og fyrrum formaður Landssamtaka lífeyrissjóða hefur skrifað fjölda greina um fjármál í gegnum tíðina og m.a. gefið út bækur um fjármál einstaklinga á öllum aldri. Í nýjasta gestapistil síðunnar skrifar Gunnar Baldvinsson um mikilvægi þess að taka strax skref til að stýra eigin fjármálum.

Vel sóttur morgunfundur um ungt fólk og lánamarkaðinn

Morgunfundur umboðsmanns skuldara og SFF um ungt fólk og lánamarkaðinn sem haldin var í gær 25. mars var vel sótt en á annað hundrað manns sátu fundinn.

Vandi vegna skyndilána eykst, nauðsynlegt að grípa til aðgerða

Umsækjendur sem óskuðu aðstoðar Umboðsmanns skuldara (UMS) vegna fjárhagsvanda fjölgaði um 6,5% á árinu 2018 miðað við árið á undan. Alls bárust 1.397 umsóknir til embættisins 2018 á móti 1.311 umsóknum árið 2017. Mest fjölgaði umsækjendum sem voru á aldrinum 18-29 ára eða úr 23% árið 2017 í 27,3% árið 2018.